Eldur kom upp í eldhúsinu

Tilkynning barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um eld í eldhúsi íbúðarhúss við Bragagötu í Reykjavík. Kviknað hafði í hlutum sem skildir höfðu verið eftir á eldavél samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skemmdir urðu mest vegna reyks og reykræsti slökkvliðið íbúðina.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vill brýna fyrir fólki mikilvægi reykskynjara enda fjöldi dæma um að þeir hafi skipt sköpum þegar eldur hefur komið upp í heimahúsum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert