Fundað í læknadeilunni

Viðræður standa enn yfir í læknadeilunni í húsakynnum ríkissáttasemjara. Fulltrúar Læknafélags Íslands komu til fundar kl. 14 og skurðlækna kl. 16. Ekki liggur fyrir hve lengi verður fundað í dag, að sögn skrifstofustjóra ríkissáttasemjara.

Samninganefnd ríkisins situr nú og ræðir við fulltrúa skurðlækna en samninganefnd Læknafélagsins er enn í húsi og hefur samningafundi þeirra ekki verið slitið. Síðast var fundað í deilunni á laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert