Íslendingur vann Eurojackpot

Íslendingur var með allar aðaltölurnar í EuroJackpot réttar síðastliðinn föstudag og varð fyrir vikið 13 milljónum ríkari.

Tölurnar sem vinningshafinn valdi eru 10, 11, 25, 32 og 49. Miðinn var keyptur í Hagkaup í Smáralind fimmtudaginn 18. desember og var þrjár raðir með Jóker.

Þar sem vinningshafinn hefur ekki enn gefið sig fram eru kaupendur EuroJackpot miða beðnir um að skoða miðann sinn gaumgæfilega, segir í frétt frá Íslenskri getspá sem vonast til þess að heyra í vinningshafanum sem fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert