Lögðu hald á lyf og fíkniefni

AFP

Lögreglunni barst tilkynning um neyslu fíkniefna í íbúð í austurhluta Reykjavíkur í gærkvöldi. Lögregla lagði hald á ætluð fíkniefni og lyf á vettvangi. 

Á ellefta tímanum í gærkvöldið var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna í Norðlingaholti. Maðurinn er sviptur ökuréttindum en hann hefur ítrekað verið tekinn fyrir akstur undir áhrifum vímuefna.

Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur á Akureyri í gærkvöldi en að öðru leyti var nóttin tíðindalítil hjá lögreglu víða um land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert