Tjón vegna vatnsleka

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í tvígang í nótt vegna vatnsleka. Fólk er beðið um að hreinsa vel frá niðurföllum en fremur hlýtt er í veðri.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var í öðru tilvikinu um tjón vegna vatns sem kom utanfrá en í hinu tilvikinu hafði vatnsleiðsla gefið sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert