Tveggja bíla árekstur varð fyrir á fjórða tímanum á Kringlumýrarbraut við bensínstöð N1 við Fossvog
Enn hafa ekki fengist upplýsingar um aðstæður frá lögreglu en bílarnir eru úti í kanti og virðast því ekki hafa orðið teljanlegar tafir á umferð vegna slyssins.
Lélegt skyggni er víða á höfuðborgarsvæðinu sem stendur og eru ökumenn hvattir til að fara varlega í umferðinni sem endranær.