Hægt að skella sér á skíði

Eflaust munu einhverjir nýta jólafríið og skella sér á skíði …
Eflaust munu einhverjir nýta jólafríið og skella sér á skíði í dag. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Skíðasvæðið í Tindastóli verður opið í dag frá kl. 11 til 16. „Það er fullt af nýjum snjó hjá okkur svo það er best að drífa sig í fjallið og nota hann,“ segir í tilkynningu. Um níuleytið var rúmlega fimm stiga frost, norðvestan 4 m/sek og léttskýjað. 

Skíðasvæðið á Dalvík verður opið í dag frá kl. 11 til 16. Um hálf ellefu var eins stigs frost, smá gola og „frábært skíðafæri í nýtroðnum brekkunum,“ líkt og segir í tilkynningu. 

Skíðasvæðið  í Böggvisstaðafjall á Dalvík verður opið frá kl. 11 til 16 í dag. Í tilkynningu kemur fram að aðstæður séu mjög góðar, hiti við frostmark og logn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert