Stúlkan komin af slysadeild

mbl.is/Hjörtur

Ellefu ára stúlka sem slasaðist alvarlega þegar hún var að renna sér á snjóþotu við bæinn Ytri-Skóga undir Eyjafjöllum í gær hefur verið flutt af slysadeild Landspítalans í Fossvogi yfir á legudeild.

Stúlkan hlaut meðal annars höfuðáverka og handleggsbrotnaði þegar hún skall á húsvegg á töluverðri ferð. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti stúlkuna á Landspítalann.

Frétt mbl.is: Hafnaði á húsvegg og slasaðist

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert