Í nálgunarbann eftir líkamsárás

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Selfossi var kölluð að heimili í bænum að kvöldi annars dags jóla en þar hafði karlmaður ráðist á sambýliskonu sína. Lögreglan segir að konan hafi hlotið minniháttar áverka. Manninum var vísað af heimilinu og hann úrskurðaður í nálgunarbann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi.  

Þar segir ennfremur að brotist hafi verið inn í hesthús í Þorlákshöfn á tímabilinu frá klukkan 17 síðastliðinn laugardag til klukkan níu á sunnudag. Þaðan var stolið nokkrum hnökkum og beislum. Lögregla biður þá sem veitt geta upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir þar um slóðir á fyrrgreindum tíma að hafa samband í síma 444 2010.

Þá var tilkynnt innbrot í sumarbústað við Kolgrafarhólsveg í Grímsnesi. Talið er að innbrotið hafi átt sér stað á tímabilinu frá 12. til 23. desember. Þaðan var stolið sjónvarpi, myndbandstæki og ýmsu fleiru. Mikið var rótað til í hirslum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert