200 nýir nemendur hófu nám við HR í janúar

Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík mbl.is/Ómar Óskarsson

Ríflega 200 nýir nemendur hófu nám við Háskólann í Reykjavík núna í janúar. Samkvæmt upplýsingum frá skólanum hófu flestir nám við tækni- og verkfræðideild skólans, en ekki var tekið inn í allar námsbrautir háskólans í janúar.

Er heildarfjöldi nemenda við Háskólann í Reykjavík nú 3790.

Í frétt mbl.is í síðustu viku kom fram að rúmlega 600 manns hafi hafið nám við Háskóla Íslands í gær. Heild­ar­fjöldi nem­enda við HÍ er tæp­lega fjór­tán þúsund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert