„Þjóðkirkju skal aldrei í lög leiða heldur skal ríkisvaldið styðja og vernda trúfrelsi á Íslandi,“ sagði Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, við umræður um störf þingsins í dag.
Vísaði hann til þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012 en þá var landsmönnum gefinn kostur á að svara því hvort þeir vildu hafa ákvæði um þjóðkirkju í nýrri stjórnarskrá. Spurningin hljómaði svo: „Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá Íslands verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi.“
Sagði hann einnig að meirihluti hefði viljað hafa ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi í nýrri stjórnarskrá og fara þyrfti eftir vilja meirihlutans.
Lagði hann þá til að ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskrá verði á þann hátt sem hann nefndi, að þjóðkirkju skuli aldrei í lög leiða heldur skuli ríkisvaldið styðja og vernda trúfrelsi á Íslandi og sagðist Helgi Hrafn þegar hafa hafið undirbúning að frumvarpi um málið.