Vita að prestar trúa ekki játningunum

Krossapróf Vantrúar.
Krossapróf Vantrúar. Skjáskot

„Það væri óskandi að ríkiskirkjan færi að uppfæra játningarnar í staðinn fyrir að saka aðra um „bókstafstrú á Biblíuna eða játningar kirkjunnar“ þegar það er vitnað í þær. Þá kannski gæti maður komist að því hverju þessi ríkisstofnun trúir eiginlega,“ segir Hjalti Rúnar Ómarsson,  ritstjóri Vantrú.is.

Hjalti Rúnar sendi mbl.is tölvubréf vegna athugasemdar Árna Svans Daníelssonar, prests í Bústaðakirkju, við krossapróf Vantrúar.

Frétt mbl.is: Prófið sé í Vantrúarkristni

Um er að ræða fimmtán spurninga krossapróf þar sem vitnað er til játninga Þjóðkirkjunnar. Árni Svanur sagði eftirfarandi um prófið í dag: „Kjarni málsins er kannski sá að þjóðkirkjan túlkar Biblíuna og játningarnar ekki bókstaflega heldur skoðar þessa texta alltaf í sögulegu samhengi. Einhvers konar próf sem byggist á bókstafstrú á Biblíuna eða játningar kirkjunnar getur þannig aldrei endurspeglað þjóðkirkjuna.“

Hjalti Rúnar segist taka undir með Árna Svan um að játningarnar beri að lesa í sögulegu samhengi. „Þær voru skrifaðar af mönnum sem trúðu öllu ruglinu sem fram kemur í játningunum. Það er sögulega samhengið. Að reyna að burtskýra ruglið í þeim með vísun til „sögulegs samhengis“ er lélegt trikk.“

Hann segir að það væri óskandi að „ríkiskirkjan“ uppfæri játningarnar í stað þess að saka aðra um bókstafstrú á Biblíuna. „Við í Vantrú vitum vel að prestar kirkjunnar trúa ekki játningunum sjálfir. Það verður samt að teljast undarlegt að prestur fari á hverjum einasta sunnudegi með postullegu trúarjátninguna þar sem talað er um almáttugan skapara, meyfæðinguna, endurkomu Jesú og upprisu mannkyns við hana, ef þeir trúa þessu svo ekki.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert