Dregur þrjá virkjunarkosti til baka

Ferðamenn við Dettifoss.
Ferðamenn við Dettifoss. mbl.is/RAX

Orkustofnun hefur ákveðið að draga til baka þrjá virkjunarkosti sem lagðir hafa verið fyrir verkefnisstjórn þriðja áfanga rammaáætlunar. Virkjunarkostirnir sem dregnir hafa verið til baka eru Arnardalsvirkjun, Helmingsvirkjun og Vetrarveita í Hálslóni.

Þetta kemur fram á vef Orkustofnunar. 

Þar segir að þetta sé gert í kjölfar ábendingar frá Hjörleifi Finnssyni þjóðgarðsverði Vatnajökulsþjóðgarðs sem komu fram í hádegisfréttum á samtengdum rásum ríkisútvarpsins þann 22. janúar síðastliðinn.

Fram kemur, að ábending Hjörleifs varðaði aðrennslisskurð Arnardalsvirkjunar sem fer inn fyrir mörk þjóðgarðsins.

„Ástæður þessa eru að við nánari athugun í kjölfar athugasemda Hjörleifs kom í ljós að kortagrunnurinn sem Orkustofnun byggði á frá Umhverfisstofnun innihélt ekki nýjustu upplýsingar um breytingar á mörkum Vatnajökulsþjóðgarðs. Nýr og uppfærður grunnur er væntanlegur á næstunni,“ segir Orkustofnun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert