Þekkir þú konuna?

Konan er beðin um að hafa samband við lögregluna.
Konan er beðin um að hafa samband við lögregluna. mynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af konunni sem sést á meðfylgjandi mynd vegna máls sem embættið hefur til rannsóknar.

Konan er vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Ef einhverjir þekkja til konunnar, eða vita hvar hana er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, eða senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið thorir.geirsson@lrh.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert