Á ofsahraða á Reykjanesbraut

mbl.is/Sigurður Bogi

Sjö ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Öll brotin áttu sér stað á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 128 kílómetra hraða.

Þá voru nokkrir ökumenn staðnir að öðrum umferðalagabrotum, svo sem að nota ekki bílbelti, tala í síma án handfrjálss búnaðar og sviptingarakstri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert