„Eins og logar bak við Skálafell“

Norðurljósin yfir Grafarholti í kvöld.
Norðurljósin yfir Grafarholti í kvöld. mbl.is/Kristinn

„Eins og logar bak við Skálafell,“ segir viðmælandi mbl.is um tignarlega norðurljósasýningu sem er yfir höfuðborgarsvæðinu. Stjörnubjart er, tunglskin og nokkurt frost. Ákjósanlegar aðstæður fyrir norðurljós.

Mbl.is hefur upplýsingar um að á annan tug rúta eru á Þingvöllum og þétt setið í hverri einustu af ferðamönnum í norðurljósaferðum. Þrátt fyrir að norðurljósin séu fremur dauf eru útlendingarnir í skýjunum með upplifunina.

Lesendur mbl.is er hvattir til að senda inn norðurljósamyndir á netfangið netfrett@mbl.is.

Ys og þys var í þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum á tíunda …
Ys og þys var í þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum á tíunda tímanum í kvöld. mbl.is/Sunna
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert