Gosinu gæti lokið eftir 4 til 15 mánuði

Eldgosið í Holuhrauni er einstakt.
Eldgosið í Holuhrauni er einstakt. mbl.is/Rax

Enn er öflugt eldgos í Holuhrauni og er talið að hraunrennslið sé nú um hundrað fermetrar á sekúndu en það samsvarar rennsli Skjálfandafljóts. Verulegar líkur eru á því að atburðarásin þróist áfram með sama hætti og verið hefur undanfarna mánuði, sem er hægt minnkandi virkni.

Á fundi vísindamannaráðs Almannavarna í morgun kom fram að sig Bárðarbungu gæti fjarað út á fimm til sextán mánuðum. Á sama hátt gæti eldgosið í Holuhrauni þróast með svipuðum hætti og því lokið eftir fjóra til fimmtán mánuði. Gögn um rúmmál hraunsins eru þó ekki eins nákvæm og sig Bárðarbungu.

Bent er á að þessum ályktunum verði að taka með fyrirvara. Ekki sé hægt að útiloka að gosið stöðvist mun fyrr. Einnig sé mögulegt að gosið verði stöðugt jafnvel svo árum skipti, en þá má reikna með að hraunrennslið yrði aðeins brot af því sem nú er.

Enn er mögulegt að gjósi í Bárðarbungu sjálfri þó svo að þróunin sem lýst er hér að ofan haldi áfram. Þrátt fyrir að gosið í Holuhrauni gæti hætt á næstu mánuðum er ekki víst að þar með yrði umbrotunum lokið. Meðal annars er mögulegt að gjósi á öðrum sprungusveimum Bárðarbungukerfisins.

Eldgosið í Holuhrauni hefur nú staðið í fimm mánuði en nú eru 152 dagar frá því að samfellt gos hófst þann 31. ágúst 2014. Umbrotin hófust 16. ágúst og hafa því staðið í 167 daga. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð var virkjuð að kvöldi 19. ágúst og hefur aðgerðin því staðið yfir í 164 daga. Til samanburðar þá stóð Vestmannaeyjagosið í 130 daga, frá 23. janúar 1973 til 3. júlí sama ár.

Miklar jarðhræringar eru enn í Bárðarbungu. Þrír skjálftar mældust stærri en 4,0 frá síðasta fundi Vísindamannráðs á þriðjudag. Sá stærsti var M4,6 í gær, fimmtudag, kl. 21:45. Fremur mikil og hviðukennd jarðskjálftavirkni var í öskju Bárðarbungu í gærkvöldi frá 20:50-22:30. Aðeins eru skráðir 4-5 skjálftar á bilinu M3,0-3,9. Alls hafa mælst um hundrað skjálftar í Bárðarbungu á tímabilinu.

Rúmlega þrjátíu skjálftar urðu í ganginum á þessu tímabili, sá stærsti M1,5. Einn og einn skjálfti hefur mælst við Tungnafelljökul og Öskju, en ekki hrinur. Nokkur virkni hefur verið við Herðubreiðartögl í gær en engir stærri skjálftar.

Í tilkynningu segir að í dag megi búast við að gasmengunin frá eldstöðvunum berist til suðurs og suðvesturs. Á morgun, laugardag, berst mengunin til suðurs og suðausturs. 

 Þrír möguleikar eru áfram taldir líklegastir um framvindu:

  • Gosið í Holuhrauni fjarar út og öskjusig í Bárðarbungu hættir.
  • Stórt öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt er að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annars staðar undir jöklinum.
  • Stórt öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi. Öskufall gæti orðið nokkurt.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert