Heilsuvera.is hefur verið valinn besti íslenski vefurinn 2014, en íslensku vefverðlaunin voru afhent í dag við hátíðlega athöfn í Gamla Bíó. Á bak við vefinn stendur fyrirtækið TM Software.
Í ár voru veitt verðlaun í fimmtán flokkum, en fjöldi flokkanna endurspeglar breidd þeirra verkefna sem vefiðnaðurinn á Íslandi kemur að. Dómnefnd valdi sigurvefina í þrettán flokkum en félagsmenn SVEF völdu athyglisverðasta vefinn.
Vefritið Blær var valinn athyglisverðasti vefurinn, Strætó var með besta appið og Nútíminn, sem Atli Fannar Bjarkarson ritstýrir, var valinn besti vefmiðillinn.
Besti íslenski vefurinn 2014
heilsuvera.is
Samstarfsaðili er TM Software
Athyglisverðasti vefurinn (valinn af félagsmönnum SVEF)
blaer.is
Birna og 'crew'
Frumlegasti vefurinn
oruggborg.is
UN women á Íslandi
Samstarfsaðilar:
Hugmyndavinna og framleiðsla: Tjarnargatan
Viðmótshönnun: Playmo
Forritun: Hreinn Beck
Besti fyrirtækjavefurinn (færri en 50 starfsmenn)
midi.is
Samstarfsaðili er Skapalón
Besti fyrirtækjavefurinn (fleiri en 50 starfsmenn)
Árskýrsla Landsvirkjunnar 2014
Samstarfsaðili: Johnson & Lemacks
Aðgengilegasti vefurinn
Vefur Háskólans í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík í samstarfi við Hugsmiðjuna og Skapalón
Besti innri vefurinn
Innri vefur Fjársýslu ríkisins
Samstarfsaðili er Hugsmiðjan
Besta þjónustusvæðið
Netbanki Landsbankans
Landsbankinn
Besta appið
Strætó
Samstarfsaðili er Stokkur
Besta markaðsherferðin á netinu
Göngum til góðs - Rauði Krossinn
Samstarfsaðili Hvíta húsið / Rósa Hrund Kristjánsdóttir
Besti einstaklings vefurinn
hvaderibio.is
Hugi Hlynsson
Besti non-profit vefurinn
hvaderibio.is
Hugi Hlynsson
Besti vefmiðillinn
nutiminn.is
Fálki útgáfa ehf.
Besti opinberi vefurinn
samgongustofa.is
Samstarfsaðili er Hugsmiðjan
Besta hönnun og viðmót
dominos.is
Samstarfsaðili er Skapalón
Íslensku vefverðlaunin eru árleg uppskeruhátíð vefiðnaðarins á Íslandi, haldin með það að markmiði að efla iðnaðinn, verðlauna framúrskarandi verkefni og hvetja þá sem starfa í vefiðnaðinum til dáða. Þau voru fyrst veitt árið 2000.