Reykur vegna handklæðis yfir lampa

Slökkvilið var kallað út í kvöld vegna reyks á herbergi í Skipholti. 

Þegar komið var á staðinn varð ljóst að um minniháttar aðgerð væri að ræða en reykurinn stafaði frá handklæði sem lagt hafði verið yfir lampa.

Handklæðið var fjarlægt af lampanum og herbergið reykræst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert