Hellisheiðin enn lokuð

Frá Hellisheiði í kvöld.
Frá Hellisheiði í kvöld. mbl.is/Malín Brand

Hvasst verður vestanlands og sums staðar stormur og víða skafrenningur með éljum. Fer versnandi á leiðinni austur fyrir Fjall og á Mosfellsheiðinni með kófi og takmörkuðu skyggni um tíma í kvöld. Eins við Akrafjall og í Melasveit. Í nótt dregur smámsaman úr snjókomu vindi á norðanverðum Vestfjörðum, en hríðarverður og hvass vindur með skafrenningi á Norður- og Norðausturlandi til morguns. Þetta kemur fram í ábendingu frá Vegagerðinni.

Sjá: Veðurvefur mbl.is

Búið er að loka Hellisheiði, þrengslum, Sandskeiði og Lyngdalsheiði allri umferð. Snjóþekja og hálka er á Suðurlandi.

Búið að opna á Holtavörðuheiði. Þæfingsfærð með stórhríð er á Bröttubrekku. Ófært er á Fróðárheiði. Hálka og skafrenningur í Svínadal en annars er hálka eða hálkublettir á Vesturlandi og eitthvað um snjókomu eða éljagang.

Á Vestfjörðum er ófært á fjallvegum, til Flateyrar og Suðureyrar. Þungfært er á  Kleifaheiði. Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð eru lokaðar. Þungfært er í Ísafjarðardjúpi og einnig er orðið þungfært og stórhríð á Hjallahálsi. Þæfingsfærð með snjókomu í Dýrafirði.

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja og víða er skafrenning eða éljagangur.

Hálka og snjóþekja er á Austurlandi og éljagangur víða.

Hálka, snjóþekja, hálkublettir og éljagangur er með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert