Corolla í happdrætti áskrifenda

Corolla-bíllinn sem dreginn verður út í áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins er í …
Corolla-bíllinn sem dreginn verður út í áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins er í sýningarsal Toyota í Kauptúni. Hjá honum standa söluráðgjafar Toyota, f.v. Gunnar Eggertsson, Garðar Már Garðarsson, Arnar Jónsson og Hlynur Ólafsson. mbl.is/RAX

Toyota Corolla-bifreið er vinningurinn í nýju áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins. Bifreiðin verður dregin úr potti með nöfnum áskrifenda blaðsins 22. apríl næstkomandi.

Morgunblaðið er óvenjulegt í dag, af þessu tilefni, það hefst á baksíðunni og endar á forsíðunni. Raunar lesa margir blaðið þannig enn, af gömlum vana, frá því baksíðan var forsíða innlendra frétta. Á morgun verður blaðið aftur með venjubundnum hætti.

Ánægjulegar viðtökur

„Þetta er annar bíllinn sem við gefum í áskrifendahappdrætti í ár. Viðtökur áskrifenda hafa verið mjög ánægjulegar og fyrir okkur er skemmtilegt að geta brugðið svona á leik með áskrifendum og þakkað þeim fyrir viðskiptin. Svo hlökkum við til að afhenda heppnum áskrifanda þennan glæsilega bíl í apríl,“ segir Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins.

Leikurinn með blaðið og happdrættið er samstarfsverkefni Morgunblaðsins og Toyota á Íslandi. Toyota fagnar því að á þessu ári eru liðin fimmtíu ár frá því fyrsta Toyotan var flutt til landsins. Bílar af þessari tegund hafa því verið hér á markaði í hálfa öld. „Við erum líka að fagna því að árið 2014 var 25. árið í röð sem Toyota var mest seldi bíllinn á Íslandi. Við erum afskaplega þakklát fyrir það og þökkum traustið. Þetta gerist ekki af sjálfu sér,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi.

Virðulegur fjölskyldubíll

Bíllinn sem einn heppinn áskrifandi vinnur 22. apríl næstkomandi er af nýjustu kynslóð Toyota Corolla. Hann er að sögn Páls rúmgóður og virðulegur fjölskyldubíll af millistærð. Corolla er einn mest seldi bíll í heimi. Yfir 40 milljónir hafa selst frá því framleiðslan hófst 1966. Fyrsta Corollan kom til Íslands 1970 og hún hefur verið með vinsælustu bílum hér og var um árabil mest seldi bíllinn á landinu. Corolla hefur verið merkisberi Toyota á Íslandi í langan tíma, ásamt Land Cruiser-jeppanum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert