Á annan tug skjálfta mældust í Bárðarbungu síðan í gærmorgun.
Stærsti skjálftinn mældist 2,5 að stærð kl. 01:59 í nótt en aðrir skjálftar voru allir minni en 2 stig.
Í kvikuganginum mældust um 20 skjálftar og voru þeir allir minni en 1,3 stig.
Tveir skjálftar voru við Tungnafellsjökul, sá stærri með stærðina 1,2. Við Herðubreið og Öskju mældust 5 skjálftar, allir minni en 1,3, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.