Las gamankvæði eftir ömmu sína

Freysteinn Bjarnason leiðir fjöldasöng við harmoniku undirleik.
Freysteinn Bjarnason leiðir fjöldasöng við harmoniku undirleik. Ljósmynd/ Sigurður Aðalsteinsson

Af tilefni Rótarýdagsins var komið saman til kaffisamsætis á Fjórðungssjúkrahúsinu á Norðfirði í dag.  Rótarýfélagar á staðnum skemmtu vistmönnum á hjúkrunardeild og Breiðabliki íbúðum aldraðra með harmonikuspili, söng og gamanmálum.

Rótarýfélagar leggja sitt af mörkum til þessa dags en hann er haldinn um allt land í hverjum klúbbi.

Kristinn Ívarsson afhenti nýjan diskaspilara frá Víglundi Gunnarssyni kaupmanni í versluninni Pan á Norðfirði til afnota á hjúkrunardeild í tilefni dagsins.

Séra Sigurður Ragnarsson og Þórður Sigurðarson léku á harmonikur, Freysteinn Bjarnason leiddi fjöldasöng, Kristinn Jóhnnsson las stutta frásögn upp úr bókinni Undir fönn eftir Jónas Árnason og séra Sigurður las gamankvæði eftir ömmu sína.

Dagskráin endaði með því að sungið var lagið Draumaveröld eftir Þorlák Friðriksson.

Kristinn Ívarsson afhendir Guðjóni Haukssyni nýjan diskspilara til afnota á …
Kristinn Ívarsson afhendir Guðjóni Haukssyni nýjan diskspilara til afnota á hjúkrunardeild. Ljósmynd/ Sigurður Aðalsteinsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert