Norðlensk fíkniefni til sölu á Facebook

Kókaín í duftformi tekið úr poka sem lögreglan lagði hald …
Kókaín í duftformi tekið úr poka sem lögreglan lagði hald á. Mynd úr safni.

Nokkrir tugir manna eru meðlimir í lokuðum hóp á Facebook þar sem eiturlyf ganga kaupum og sölum. Svo virðist sem hópurinn sé einvörðungu ætlaður fyrir þá sem búa í Akureyri og nágrenni. Mbl.is fékk aðgang að hópnum í gegnum nafnlausa ábendingu fyrir skömmu en hópurinn var stofnaður í desember 2014.

Mbl.is hefur áður greint frá tilvist slíkra hópa auk þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nýlega unnið markvist að upprætingu þeirra. Vandinn er hinsvegar greinilega ekki aðeins bundinn við Reykjavík.

Amfetamín, kannabis og pólskur landi eru á meðal þeirra vara sem meðlimir hópsins auglýsa til sölu gegn greiðslu.

Einn meðlima hópsins auglýsir amfetamín til sölu en spítt er …
Einn meðlima hópsins auglýsir amfetamín til sölu en spítt er eitt þeirra nafna sem efnið gengur undir á markaði götunnar. Skjáskot af Facebook

Vörur á við mjólkursykur eru einnig seldar með aðstoð síðunnar, og jafnvel sendar með póstkröfu frá Reykjavík, en mjólkursykur er einkum notaður til að drýgja fíkniefni í duftformi eins og til dæmis kókaín.

Boðið er upp á að senda mjólkursykur með póstkröfu út …
Boðið er upp á að senda mjólkursykur með póstkröfu út á land og virðist sem kílógramm af efninu kosti 15 þúsund krónur. Skjáskot af Facebook

Við skoðun síðunnar virðast flestir meðlimir hópsins notast við dulnefni sem ýmist eru dregin af þekktum goðsagnapersónum, teiknimyndafígúrum eða þekktum einstaklingum úr íslensku samfélagi, lífs eða liðnum.

Amfetamín er einna fyrirferðamest á síðunni en hraði og femmi …
Amfetamín er einna fyrirferðamest á síðunni en hraði og femmi eru meðal götunafna efnisins. Skjáskot af Facebook

Þó lítur út fyrir að nokkrir meðlimir notist við eigin nöfn en þeir eru að sama skapi ekki gjarnir á að auglýsa fíkniefni til sölu. Erindi þeirra í hópinn virðist þannig einkum vera í hlutverki neytanda og líklega telja þeir sig ekki þurfa dulnefni af þeim sökum.

Kannabis er auglýst til sölu ásamt mynd af efninu. Sérstaklega …
Kannabis er auglýst til sölu ásamt mynd af efninu. Sérstaklega er tilgreint hvaða afbrigði plöntunnar sé um að ræða. Skjáskot af Facebook

Auglýsingar á síðunni fá alla jafna ekki svör frá öðrum meðlimum, enda gefa auglýsingar yfirleitt upp símanúmer seljanda eða benda áhugasömum á að senda fyrirspurn með einkaskilaboðum á Facebook. Ljóst er því að mikill hluti viðskiptanna á sér stað að tjaldabaki og hópur sem þessi er að líkindum aðeins toppur ísjakans.

Amfetamín auglýst til sölu. Seljandinn reynir að sannfæra aðra meðlimi …
Amfetamín auglýst til sölu. Seljandinn reynir að sannfæra aðra meðlimi síðunnar um að efnið virki eins og til sé ætlast. Skjáskot af Facebook

 Samkvæmt heimildum mbl.is er lögreglan á Akureyri meðvituð um tilvist hópsins en ekki er vitað hvort hún hafi aðhafst  nokkuð vegna þessa. Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur á und­an­förn­um vik­um hand­tekið á ann­an tug manna og lagt hald á tals­vert af fíkni­efn­um í aðgerðum sem bein­ast gegn sölu fíkni­efna á sam­fé­lags­miðlum.

Einn meðlima hópsins segist vera ferskur á eyrinni og vísar …
Einn meðlima hópsins segist vera ferskur á eyrinni og vísar þannig líklega til staðsetningar sinnar í Eyrarhverfinu á Akureyri. Skunk er eitt þeirra nafna sem notað er yfir kannabis. Skjáskot af Facebook

Að mati lög­reglu er um­fang fíkni­efna­sölu á sam­fé­lags­miðlum veru­legt, en aðgerðunum verður fram­haldið. Þess má geta að all­nokkr­um Face­booksíðum, sem hafa boðið fíkni­efni til sölu, hef­ur verið lokað.

Á síðunni má einnig finna auglýsingar um landa frá Póllandi …
Á síðunni má einnig finna auglýsingar um landa frá Póllandi sem reglulega er auglýstur til sölu. Lítri af landanum virðist vera falur fyrir 2500 krónur. Skjáskot af Facebook

Hópurinn telur mun færri meðlimi en annar hópur sem mbl.is fjallaði um fyrr í febrúarmánuði. Engu síður hefur hópurinn þó verið virkur og ljóst má vera að hann er vissulega notaður til að greiða fyrir viðskiptum með fíkniefni manna á milli.

Fyrr í dag komu inn skilaboð frá einum forsprakka síðunnar þar sem hann segist hafa stofnað annan hóp fyrir sölu fíkniefna þar sem annar notandi hafi hótað að hafa samband við lögreglu og upplýsa um tilvist hópsins.

Lög­regl­an minn­ir á fíkni­efn­asím­ann 800-5005. Í hann má hringja nafn­laust til að koma á fram­færi upp­lýs­ing­um um fíkni­efna­mál. Fíkni­efn­asím­inn er sam­vinnu­verk­efni lög­reglu og tol­lyf­ir­valda og er liður í bar­átt­unni við fíkni­efna­vand­ann. Upp­lýs­ing­um má einnig koma á fram­færi í einka­skila­boðum á fés­bók­arsíðu lög­reglu.

Sjá fyrri fréttir mbl.is: 

„Þetta er allt of lítið mál“

Selja vopn og fíkni­efni á Face­book

Handteknir fyrir dópsölu á Facebook

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert