Staðreyndir um eldgosið

1. Eldgosið í Holuhrauni hófst þann 31. ágúst árið 2014. Það stóð því yfir í 180 daga. Hér má sjá fyrstu frétt mbl.is eftir að gosið hófst. 

2. Í lok janúar mældist hraunbreiðan 84,6 ferkílómetrar. Þá hafði gosið staðið yfir í fjóra mánuði. Um miðjan febrúar var hraunbreiðan orðin 85 ferkílómetrar, og ljóst að verulega var farið að draga úr útbreiðslu hennar. 

3. Í lok janúar var farið að draga verulega úr gosinu. Haraldur Sigurðsson, eldfjallafræðingur spáði því á bloggsíðu sinni í október að gosið myndi standa fram í mars á þessu ári. Reyndist spá hans ansi nákvæm. 

4. Í febrúar tók svo að draga heldur úr skjálftavirkninni og styrkti það trú vísindamanna á því að gosið nálgaðist endalok sín. 

5. Í fljótu bragði virðist sem stærstu jarðskjálftarnir á svæðinu hafi orðið 5,5 að stærð. Skömmu fyrir gosið var þó skjálfti sem var 5,7 stig en þá voru engin ummerki um eldgos. 

6. Töluverð gasmengun hefur orðið af gosinu. Í október á síðasta ári varð mengunin svo mikil á Höfn að íbúar fundu fyrir óþægindum og börnum var haldið innandyra

Hér má sjá myndskeið með ljósmyndum Ragnars Axelssonar, ljósmyndara Morgunblaðsins af gosinu. Myndskeiðið er frá nóvember 2014. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert