Allir hvalir sem sést hafa við Íslandsstrendur

Á þriðja tug hvalalíkana í raunstærð eru til sýnis á hvalasýningunni Whales of Iceland sem formlega var opnuð fyrir helgi. Að sögn Harðar Bender, stofnanda og stjórnarformanns sýningarinnar, hefur verkefnið tekið um tvö ár og er þetta fjárfesting upp á hundruð milljóna króna.

„Hugmyndin kemur af þeirri eðlilegu ástæðu að stærstu dýr heimsins eru hvalir. Við Íslandsstrendur eru mestar líkur á því í öllum heiminum að sjá hvali þegar fólk fer í hvalaskoðun. Því er tilvalið að setja upp þetta safn hvölum til heiðurs,“ segir Hörður. Að sögn hans sjást hvalir í 96-97 prósentum tilvika í hvalaskoðunarferðum hér.

Fá stærri bita af kökunni

Hann segir að 30 milljónir manna fari hvalaskoðun í heiminum á hverju ári og 30 prósent ferðamanna sem til Íslands koma fara í hvalaskoðun. „Það er því ástæða til þess að áætla að það sé eftirspurn eftir því að skoða hvalina. Bæði vonumst við til þess að þetta styrki áhugann á hvölum, en einnig að við fáum stærri bita af þessari köku sem þessar 30 milljónir manna eru,“ segir Hörður.

Mikil vinna liggur að baki hönnun sýningarinnar. „Við vorum svo heppnir að fá listamenn sem hafa verið að vinna í hvalaiðnaði og þeir þekktu t.a.m. litina sem eru á hverjum hval. Það er mikilvægt þegar um er að ræða hvali sem ekki sjást við Ísland lengur, eða eru sjaldséðir hér,“ segir Hörður.

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="360" src="/mblplayer/i/94788/" style="border: 0;" width="640"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>

Til sýnis verða allir hvalir sem sést hafa við Íslandsstrendur. „Tveir þeirra finnast varla lengur. Það eru íslenski sléttbakurinn og sandlægja,“ segir Hörður.

Verkefnið er unnið í samstarfi við hvalaskoðunarfyrirtæki. Tveir aðilar koma að fjármögnuninni. Það eru ITF (Icelandic tourism fund) sem Icelandair og lífeyrissjóðirnir standa að baki auk Harðar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert