Ekki drekka Energy For You

Energy For You Nanoclustered Water og Wayback Water - Energy …
Energy For You Nanoclustered Water og Wayback Water - Energy For You Nanoclustered Water.

Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur innkallað Energy For You Nanoclustered Water og Wayback Water - Energy For You Nanoclustered Water og bendir þeim sem eiga umræddar vörur að neyta þeirra ekki, farga þeim eða skila til þeirrar verslunar þar sem varan var keypt.

Komið hefur í ljós að vörurnar eru framleiddar af fyrirtæki án starfsleyfis og við aðstæður sem samræmast ekki lögum um matvæli nr. 93/1995 og reglugerðum settum með stoð í þeim.  Þetta gerir það að verkum að ekki er hægt að fullyrða að vörurnar séu öruggar til neyslu.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti:  Vörunni hefur verið dreift með tveimur mismunandi merkimiðum; Energy For You Nanoclustered Watereða Wayback Water - Energy For You Nanoclustered Water.

Framleiðandi:  Energy for you ehf. (þessar upplýsingar vantar á vörurnar).

Framleiðsluland:  Ísland.

Dreifing:  Samkvæmt upplýsingum sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur fengið hafa þessar vörur verið seldar í Heilsutorgi Blómavals og Lyfsalanum Glæsibæ. Einnig hafa borist upplýsingar um að vörunum hafi verið dreift í beinni sölu til einstaklinga en það hefur ekki verið staðfest af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert