Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum var ástandið slæmt á Reykjanesbrautinni fyrr í dag og mældist vindur um tíma 25 m/s. Vind er aðeins tekið að lægja á Reykjanesbrautinni og mælist nú um 15 m/s samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Eitt óhapp varð á Reykjanesbrautinni í rokinu í dag en flutningabíll fauk á hliðina. Ökumaður flutningabílsins slapp ómeiddur.
Bíllinn verður fjarlægður þegar veður skánar, segir lögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum.