Nýtt samkomulag tryggir öllum atvinnutengda starfsendurhæfingu

Hannes G. Sigurðsson, formaður stjórnar VIRK, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og …
Hannes G. Sigurðsson, formaður stjórnar VIRK, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra. Ljósmynd/VIRK

Samkomulag hefur náðst milli stjórnvalda og heildarsamtaka vinnumarkaðarins um hvernig framlög úr ríkissjóði til starfsendurhæfingarsjóða skuli háttað. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs.

Þar segir að samkomulagið muni binda enda á þá óvissu sem hópar sem standa utan vinnumarkaðar hafa þurft að sæta um þjónustu hjá VIRK. Það tryggi að öllum sem á þurfa að halda sé tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing til að verða virkir á vinnumarkaði.

Þá kemur fram að félags- og húsnæðismálaráðherra fái fulltrúa í stjórn VIRK.

„Hannes [G. Sigurðsson, formaður stjórnar VIRK] segir það mjög ánægjulegt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisstjórnin taki höndum saman um að tryggja öllum starfsendurhæfingu því það sé ávísun á betri vinnumarkað. Fólk sem hafi lokið starfsendurhæfingu sé dýrmætt fyrir atvinnulífið því kraftar þess geti nýst vel. Óvænt áföll vegna veikinda eða slysa setji oft strik í reikninginn en VIRK hjálpi fólki að bæta líf sitt, nýta styrkleika sína og komast út á vinnumarkaðinn á ný,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert