Róleg þrátt fyrir lottóvinning

Kona mætti til Íslenskrar getspár í dag til að vitja vinnings síns í lottóinu síðasta laugardag. Hún er annar fjögurra vinningshafa stóra pottsins sem kemur að vitja vinningsins.

Konan og maður hennar höfðu keypt lottómiða fyrir síðasta útdrátt enda potturinn stór: Rúmlega 90 milljónir.

Hún skrifaði tölurnar samviskusamlega upp þegar útdrátturinn var sýndur í sjónvarpinu og sagði róleg við manninn sinn að þau væru með allar tölurnar réttar í lottóinu. Hann heyrði strax að henni var alvara.

Hún sagði vinninginn vera mikla lukku því þau hafi farið illa út úr hruninu og ætla að þiggja fjárhagsaðstoðina, með tilliti til elliáranna.

Frétt mbl.is: Nota vinningsfé til bílkaupa

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert