Nánast ekkert skyggni er á Hellisheiðinni en þar er skafrenningur og mjög hvasst. Heiðin er fær og vonast Vegagerðin til þess að hægt verði að halda henni opinni í dag en spáin er mjög slæm fyrir þetta svæði.
Ökumaður sem mbl.is ræddi við fyrir skömmu segir að færðin sé ágæt og nokkur ruðningstæki að störfum á Hellisheiði. En skyggni sé nánast ekkert og mjög hvasst. Það er hins vegar mun bjartara yfir þegar austar dregur og þokkalegt skyggni í Kömbunum. Sjá veðurvef mbl.is.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er mjög hvasst eða um 19 metrar á sekúndu á Hellisheiði auk snjókomu. Veðrið er að versna og gert ráð fyrir mjög slæmu veðri á þessum slóðum frá hádegi og þangað til síðdegis í dag. Ef ekki verður hægt að halda Hellisheiði opinni er möguleiki á að Suðurstrandarvegur haldist opinn þar sem spáð er rigningu og eða slyddu á láglendi á meðan snjókomu er spáð á heiðum.
Fólk er hvatt til þess að fylgjast með fréttum af færð á mbl.is og á vef Vegagerðarinnar áður en lagt er af stað í ferðalög í dag.
Það eru hálka og skafrenningur á Sandskeiði og á Hellisheiði en hálka í Þrengslum. Hálka eða hálkublettir er allvíða á Suður- og Suðvesturlandi. Hálkublettir og óveður eru á Kjalarnesi, hálka og óveður er við sunnanverðan Hvalfjörð. Óveður er á Grindavíkurvegi og við Festarfjall, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.
„Frá því um hádegi verður mjög blint verði og dimm ofanhríð á veginum austur fyrir
fjall þar til skil lægðarinnar verða farin yfir á milli kl. 17 og 18. Eins
stórhríðarveður um tíma og lítið skyggni á Vatnleið, Bröttubrekku, Svínadal og á
Holtavörðuheiðinni, sem og á sunnanverðum Vestfjörðum. Þá er reiknað með
hviðum 35-45 m/s undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi á frá því laust fyrir hádegi og þar
til síðdegis. Einnig á norðanverðu Snæfellsnesi,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir. Ófært og stórhríð er á Fróðárheiði. Hálkublettir og óveður er undir Hafnarfjalli. Hálka eða snjóþekja er nánast á öllum á vegum á Vestfjörðum, þó aðeins hálkublettir á Innstrandavegi.
Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum.
Hálka, snjóþekja eða hálkublettir eru á vegum á Austurlandi. Greiðfært er frá Breiðdalsvík með suðausturströndinni vestur undir Öræfi en þar tekur við hálka og hálkublettir.