Græða á bágri stöðu nemenda

Frá mótmælum námsmanna við Alþingi.
Frá mótmælum námsmanna við Alþingi. Kristinn Ingvarsson

„Röskva harmar að grundvöllur hafi skapast fyrir stofnun einkarekins lánasjóðs fyrir námsmenn.“

Með þessum orðum hefst yfirlýsing frá félaginu þar sem farið er fram á að stúdentar fái staðfestingu á því að stofnun  nýs lánasjóðs muni ekki draga úr starfsemi LÍN.

„Nýlega bárust fregnir af því að nýr einkarekinn lánasjóður hafi verið stofnaður fyrir námsmenn. Einkarekinn lánasjóður er annars eðlis en ríkisrekinn; hann hefur það markmið að græða á nemendum. Í því felast óhagstæðari kjör fyrir nemendur; vextirnir eru mun hærri, mánaðarlegar greiðslur eru ekki tekjutengdar og hjá þessum nýja lánasjóði þarf að greiða lánið upp á 12 árum. Það gefur því auga leið að ekki er á allra færi að taka slíkt lán og því getur lánasjóður af þessari gerð aldrei komið í stað ríkisrekins lánasjóðs.

Þessi nýi lánasjóður býður upp á þann möguleika að taka lán til viðbótar við lán frá LÍN þegar grunnframfærslan dugir ekki, t.d. hjá fjölskyldufólki. Það er með öllu ótækt að foreldrar og aðrir í námi geti ekki framfleytt sér á þeirri grunnframfærslu sem LÍN býður upp á. Með óraunhæfri framfærslu LÍN hefur skapast rými á markaði fyrir einkaaðila að græða á bágri stöðu nemenda

Röskva vill að stúdentar fái staðfestingu á því að stofnun nýs lánasjóðs muni ekki draga úr starfsemi LÍN. Stofnun lánasjóðsins sýnir svart á hvítu að þörf er á raunhæfari framfærslugrunni námslána LÍN. Þetta höfum við í hagsmunabaráttu stúdenta ítrekað bent á en ríkisstjórnin látið sem vind um eyru þjóta. Nú þegar þetta liggur fyrir krefjumst við svara; hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að sporna við þessari þróun?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert