Handtekinn á vettvangi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók innbrotsþjóf um tvöleytið í nótt þar sem hann var að störfum í austurbænum.

Tilkynning barst til lögreglu um innbrotið klukkan 02:08 en átta mínútum síðar, klukkan 02:16, var búið að handtaka manninn á staðnum. Hann er vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag. 

Um eittleytið var tilkynnt til lögreglu um mann sem hafði dottið innandyra á skemmtistað í Kópavogi. Lögreglumenn fóru með viðkomandi á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Hann fór hins vegar ekki til síns heima heldur gistir fangageymslur þar sem hann neitaði að segja til nafns og fór ekki að fyrirmælum lögreglu. Hann verður yfirheyrður síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert