Banaslys á Suðurlandsvegi

mbl.is

Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi, vestan við Kirkjubæjarklaustur á tíunda tímanum í morgun.

Tveir erlendir ferðamenn voru á ferð og virðist sem svo að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í slæmri færð með þeim afleiðingum að hann valt út fyrir veg.

Annar þeirra var úrskurðaður látinn á vettvangi, en hinn ferðamaðurinn slasaðist lítillega, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Lögregla á Suðurlandi er að vinna á vettvangi og er rannsókn málsins á frumstigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert