Forysta VG hélt olíumáli leyndu

Fyrrverandi ráðherra VG átelur forystuna.
Fyrrverandi ráðherra VG átelur forystuna. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Mikil óánægja er að brjótast upp á yfirborðið meðal almennra félagsmanna í Samfylkingunni og VG vegna þeirrar ákvörðunar síðustu ríkisstjórnar flokkanna tveggja að heimila olíuleit á Drekasvæðinu.

Haft var eftir Dofra Hermannssyni í Morgunblaðinu í gær að margir samfylkingarmenn brugðust illa við þessari ákvörðun á sínum tíma. Sú óánægja kom í ljós á landsfundi Samfylkingar um síðustu helgi þegar yfirgnæfandi meirihluti fundarmanna studdi tillögu um að hætta beri við olíuvinnslu á Drekasvæðinu.

Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra og einn af stofnendum VG, segir ákvarðanir um olíuleit ekki hafa verið bornar undir almenna félagsmenn. Leyfi til leitar og vinnslu hafi gengið þvert gegn stefnu flokksins.

Áréttað í Grænni framtíð

„Það var mikil umræða eftir stofnun VG 1999 og alveg sérstaklega á árunum 2006 og 2007 um umhverfismál. Þá varð til allvíðtæk stefnumótun sem ég átti hlut að undir fyrirsögninni „Græn framtíð“. Þar var fjallað um loftslagsmálin sérstaklega og einnig um mengunarmál og varað við mengun af völdum olíuvinnslu á norðlægum slóðum. Þá datt engum í hug að það yrði farið að úthluta leyfum í þessu skyni og það með samþykki VG. Undir lok árs 2012 kom þetta mál upp á yfirborðið en hafði þá verið til umsagnar hjá ráðuneytum vegna fyrirætlana Orkustofnunar um að gefa út leitar- og vinnsluleyfi. Þetta fór leynt gagnvart flokksfélögum. Það kom svo tilkynning frá Orkustofnun 3. desember 2012 um hvað til stæði og leyfin voru svo gefin út rétt eftir áramótin að viðstöddum norskum ráðherra,“ segir Hjörleifur og víkur að þætti þáverandi formanns VG, Steingríms J. Sigfússonar, í olíumálinu.

„Undirbúningurinn var mér vitanlega aldrei til umræðu innan VG 2012, en um leyfisveitingarnar var fjallað í umhverfis- og atvinnuvegaráðuneytum á vegum ráðherra flokksins. Þar var skrifað upp á leyfin, vissulega með áskorunum um varúð vegna mengunarhættu. En í grundvallaratriðum var ekki lagst gegn þessu. Þvert á móti gerðist formaður flokksins eins konar merkisberi í þessum efnum, í samkeppni við Samfylkinguna. Þarna var ekki aðeins um leit að hugsanlegum kolvetnum að ræða heldur fylgdi þessum leyfisveitingum heimild til olíuvinnslu í allt að 30 ár fram í tímann. “

Lagðist illa í ungliða VG

Hjörleifur segir málsmeðferðina hafa átt þátt í úrsögn sinni úr VG.

Hann segir ungliða í VG hafa risið upp eftir að leyfin voru veitt.

„Í framhaldinu fóru að heyrast raddir hjá ungliðum í Vinstri grænum sem gagnrýndu þöggun og málsmeðferð flokksforystunnar. Ég hygg að þau hafi flutt tillögu þegar á árinu 2013 og síðan á flokksráðsfundi í byrjun árs 2014. Þar kváðu þau mjög skýrt á um að það yrði bundinn endi á þessar fyrirætlanir og að flokkurinn legðist gegn þeim. Í stað þess að tillagan gengi til atkvæða var henni að frumkvæði flokksforystunnar vísað til stjórnar flokksins, að ég best veit. Þetta lagðist illa í Unga vinstri græna og þau ályktuðu um málið á landsfundi sínum haustið 2014 með skörpum hætti og gagnrýndu þessa málsmeðferð,“ segir Hjörleifur en ályktunin er rifjuð upp hér til hliðar.

Hjörleifur segir að ef farið verði í vinnslu olíu og gass á norðurskautssvæðinu séu öll losunarmarkmið úr sögunni með skelfilegum afleiðingum. „Trúverðugleiki umhverfisverndarflokks sem styður slíka stefnu er þá auðvitað um leið fokinn út í veður og vind,“ segir Hjörleifur.

Flokksmenn aldrei spurðir

Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður VG 1999 til 2009, segir olíuleit á Drekasvæðinu aldrei hafa verið borna undir almenna félagsmenn í flokknum þegar hún var virk í flokksstarfinu. Hún gagnrýnir að leitin skuli hafa verið boðin út í tíð ríkisstjórnar VG og Samfylkingar.

„Vilji almennra flokksmanna í málinu var aldrei kannaður. Mitt mat var að þeir sem teldu sig vera Vinstri græna hlytu að hafa skrifað undir stefnuyfirlýsingu okkar sem gekk út á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, sem skyldi vera meginstef í stefnu flokksins. Samkvæmt þeirri hugmyndafræði, sem ég gekk út frá að allir kynnu utanbókar, ber að draga úr brennslu jarðefnaeldsneytis í veröldinni.“

Í sjónvarpsviðtali á Stöð 2 nokkrum dögum fyrir kosningarnar 2009 var hart gengið að þér að gefa upp afstöðu þína til olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Þú virtist fá lítinn stuðning frá forystu flokksins í kjölfarið?

Fámennur hópur Steingríms J.

„Þegar ég fór í þetta dramatíska viðtal stóð ég frammi fyrir því að verja stefnu flokksins. Ég taldi mig auðvitað hafa stefnuyfirlýsingu flokksins og hugmyndafræði á bak við mig. En það var greinilegt að mín viðbrögð voru ekki í samræmi við vilja og hugmyndafræði allra í forystu flokksins. Það er mitt mat að þarna hafi ég komið óþægilega við fámennan hóp úr Norðausturkjördæmi, kjördæmi Steingríms J. Sigfússonar, og verið ofurliði borin. Í viðtalinu gerði ég varla annað en að undirstrika stefnu flokksins og vilja hins almenna flokksmanns og kjósenda flokksins. Mér finnst það vera að koma á daginn, þótt seint sé, að mat mitt á þeim vilja hafi verið rétt. Ég hefði vonast eftir sterkari stuðningi frá grasrótinni þá og öðrum félögum mínum í VG.“

Telurðu að þessi afstaða VG til olíuleitar eigi þátt í að VG hafi misst fylgi til annarra flokka síðan gengið var til þingkosninga 2013?

„Já, ég held að þetta sé þáttur í því. En það er auðvitað mikil hreyfing á fylgi stjórnmálaflokkanna.“

Hefur þetta veikt vígstöðu VG?

„Það er erfitt fyrir mig að meta það, enda hef ég staðið lengi utan stjórnmálanna. Það er hins vegar ljóst að það er veruleg þörf fyrir umhverfisverndarsinnað fólk í stjórnmálunum sem er gegnheilt í umhverfisverndarmálum og skilur hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Almenningur er enda miklu meðvitaðri um þessi mál en hann var fyrir 10-15 árum.“

Ærlegur flokkur á sóknarfæri

Eru jafnvel að skapast skilyrði fyrir myndun nýs umhverfisverndarflokks á Íslandi?

„Mín tilfinning er sú að sá flokkur sem treystir sér til að verða gegnheill umhverfisverndarflokkur ætti möguleika á góðri kosningu. Stundum hefur almenningsálitið farið fram úr stjórnmálunum og ég nefni þá til dæmis málefni samkynhneigðra. Almenningsálitið þvingaði flokkana inn á ákveðið spor í þeim málum. Ég hef á tilfinningunni að svipað sé að gerast núna, að almenningsálitið muni þvinga flokkana inn á umhverfisverndarspor, langt umfram það sem flokkarnir hafa sagst vera að gera fram að þessu,“ segir Kolbrún.

„Flokksráð VG skammist sín“

Eins og Hjörleifur Guttormsson bendir á risu ungliðar í VG upp gegn flokksforystunni í fyrrahaust:

„Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn í Valhöll á Eskifirði 19.-21. september 2014, lýsir yfir sárum vonbrigðum sínum með þá málsmeðferð sem ályktun stjórnar Ungra vinstri grænna um olíuvinnslu hlaut á flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í ársbyrjun. Það er hreyfingu sem kennir sig við umhverfisvernd til minnkunar að geta ekki tekið einarða afstöðu gegn jafnaugljósri umhverfisvá og olíuvinnslu. Ung vinstri græn skora á Vinstrihreyfinguna – grænt framboð að standa í lappirnar og leggjast af fullum krafti gegn slíkum áformum að málsmeðferðinni lokinni,“ sagði í yfirlýsingunni sem var með fyrirsögninni „Flokksráð VG skammist sín“.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert