„Skapi stórhættu oft á dag“

Gatnakerfið á höfuðborgarsvæðinu hefur séð betri daga.
Gatnakerfið á höfuðborgarsvæðinu hefur séð betri daga. mbl.is/Júlíus

Það er engum greiði gerður með stórhættulegu gatnakerfi að mati Bílgreinasambands Íslands (BGS), sem telur sig knúið til að benda stjórnvöldum á þá alvarlegu stöðu sem skapi stórhættu á degi hverjum „og gæti endað með banaslysi“.

Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á aðalfundi BGS í gær. Þar var sérstaklega fjallað um aðgerðir gegn svartri atvinnustarfsemi en einnig var ályktað um bágborið ástand vega. Einnig var fjalla um meðferð tjónabíla og ábyrgðamál.

Þá fór stjórnarkjör fram og var Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, endurkjörinn formaður Bílgreinasambandsins.

Bætt verði úr ófremdarástandinu

Ályktunin sem BGS samþykkti á fundinum er svohljóðandi:

„Eins og mikið hefur verið í umræðunni upp á síðkastið er ástand vega og gatna, hvort sem um er að ræða þjóðvegi eða vegi í þéttbýli, afar bágborið og er staðan víða þannig að hættuástand hefur myndast. Fjöldi bifreiða hefur skemmst bæði þannig að hjólbarðar og felgur hafa eyðilagst sem og hjólabúnaður hefur laskast og þannig skapast mikil hætta fyrir þá aðila sem í umræddum bílum ferðast sem og öðrum sem á vegi þeirra kunna að verða. 

Aðilar innan Bílgreinasambandsins fagna ávallt að hafa næg verkefni en þeim hefur fjölgað gífurlega nú í vetur vegna ástands gatna og vega. Það er hins vegar engum greiði gerður með stórhættulegu gatnakerfi og því telja aðilar Bílgreinasambandsins sig knúna til að benda stjórnvöldum á þessa alvarlegu stöðu sem er að skapa stórhættu oft á dag og gæti endað með banaslysi. Öllum er ljóst að undanfarin ár hefur mikið skort á í viðhaldi vega og gatna vegna mikils niðurskurðar og nú verður ekki lengur við svo búið.

Aðalfundur Bílgreinasambandsins hvetur alla sem hlut eiga að máli að hefjast handa við að bæta úr þessu ófremdarástandi og nýta þá fjármuni sem falla til m.a. í gegnum skattkerfi bílgreinarinnar sbr. bensínskatta til viðhalds og endurnýjunar vegakerfisins þar til vegir og götur eru komin í viðunandi ástand að nýju.

Þá vill Bílgreinasambandið benda á að við búum á norðurhjara veraldar, þar sem bíllinn er einn þarfasti þjónninn og flest allar aðgerðir til að þrengja um of að bílnum, t.d. með þrengingum gatna, fækkun bílastæða o.s.frv. eru til þess fallnar að auka kostnað og óþægindi íbúanna og þeirra sem byggja þetta land.“

Aðildarfyrirtæki Bílgreinasambands Íslands eru 126 og starfa þau á flestum sviðum bílgreinarinnar

Jón Trausti Ólafssson, formaður Bílgreinasambands Íslands.
Jón Trausti Ólafssson, formaður Bílgreinasambands Íslands.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert