Tveimur bílum stolið í morgun

Renault Trafic.
Renault Trafic. Ljósmynd/Jónas Valur Jónasson

Tveimur bifreiðum, Mercedes Benz c200 með bílnúmerið ZZ-371 og Renault Trafic með bílnúmerið RH-N90, var stolið af bílasölunni Bifreiðasölunni á Malarhöfða 2 í morgun.

Jónas Valur Jónasson, hjá Bifreiðasölunni, segir að það virðist vera sem að þjófarnir hafi vel vitað hvað þeir voru að gera. Þeir gengu meðfram veggnum þannig myndavélin náði ekki mynd af þeim, ýttu svo við henni þannig hún vísaði upp í loft. 

„Þeir höfðu greinilega komið þarna áður þar sem þeir rótuðu ekki í neinu. Þeir gengu beint að lyklaskúffunni,“ segir Jónas en þjófarnir, eða þjófurinn, spenntu upp glugga á bílasölunni þar sem þeir náðu í lyklana.

Hann er búinn að hafa samband við lögreglu vegna málsins.

Mercedes Benz c200.
Mercedes Benz c200. Ljósmynd/Jónas Valur Jónasson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert