Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, lenti við Landspítalann í Fossvogi á sjötta tímanum í dag með slasaðan sjómann.
Ekki liggur fyrir hversu alvarlega hann er slasaður, en hann er ekki í lífshættu.
Þyrlan fór í loftið rétt fyrir klukkan þrjú í dag til að sækja manninn til Djúpavíkur á Ströndum. Veðuraðstæður á staðnum voru ágætar, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.
Frétt mbl.is: Sækir slasaðan sjómann