Vatnsleki í Hótel Reykjavík Natura

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Ómar

Slökkvilið höfuðborg­ar­svæðis­ins var kallað út um miðnætti í gærkvöldi vegna vatnsleka í húsnæði Icelandair Hótel Reykjavík Natura, áður nefnt Hótel Loftleiðir, við Reykjavíkurflugvöll.

Miðlunartankur gaf sig þannig að vatn flæddi niður þrjár hæðir. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu tókst að stöðva lekann og hreinsa upp vatnið, en þó urðu talsverðar skemmdir vegna lekans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert