Tvö frumvörp Eyglóar samþykkt

Eygló Harðardóttir.
Eygló Harðardóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Tvö frumvörp Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, af þeim fjórum sem rædd voru í ríkisstjórn í dag, voru samþykkt. Hin tvö eru að sögn Eyglóar enn í kostnaðarmati. Frumvörpin fjalla um húsnæðismál. Þau frumvörp sem samþykkt voru á fundinum eru frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum og frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðissamvinnufélög.

Eygló svaraði því ekki hvort að frumvörpin tvö verði lögð fram fyrir mánaðamót en þá rennur út formlegur frestur til að leggja fram frumvörp á Alþingi á þessu þingi.

Ríkisstjórnarfundur hófst kl. 11 í morgun og lauk á fjórða tímanum. Veiðigjaldafrumvarp sjávarútvegsráðherra var einnig til umræðu á fundinum. Meðal þess sem var í drög­um að frum­varp­inu var að lagt verði viðbót­ar­veiðigjald á mak­ríl, 10 krón­ur á kíló. Það mun skila rík­is­sjóði auka­lega 1,5 millj­örðum króna miðað við 150.000 tonna mak­ríl­kvóta. Verði sú raun­in verður veiðigjald á mak­ríl hærra en á þorski.

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra sagði er hann kom út af ríkisstjórnarfundi á fjórða tímanum að stefnt væri að því að leggja frumvarpið fram á þessu þingi. Hann vildi ekki tjá sig frekar fyrr en að loknum þingflokksfundi Framsóknarflokksins.

Í frétt RÚV um frumvörpin fjögur sem Eygló hyggst leggja fram á þingi kemur fram að þau fjalli um stofnstyrki, húsnæðisbætur, breytingu á lögum um húsnæðissamvinnufélög og breytingu á húsnæðisleigulögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert