„Við bara skiljum þetta ekki“

„Við bara skiljum þetta ekki, þetta er alveg ótrúlegt mál,“ segir Sigurlín Rósa Óskarsdóttir, íbúi í Gnoðarvogi, um hugmyndir borgarinnar um að opna fyrir umferð í gegn um götuna að leikskólanum Steinahlíð. Hugmyndin er að minnka slysahættu á vinsælli hjóla- og gönguleið að sögn Hjálmars Sveinssonar, formanns umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar.

Hugmyndir borgarinnar, sem fela í sér breytingar á deiluskipulagi og eru nú í grenndarkynningu, ganga út á að færa umferð að leikskólanum af Suðurlandsbraut og inn í Gnoðarvog. Þannig megi minnka slysahættu á hjóla- og göngustíg sem gengur þvert á innkeyrslu að leikskólanum. Börnum var nýlega fjölgað úr 30 í 55 og því er þörf á að bæta aðgengi og fjölga bílastæðum að sögn Steinunnar Jónsdóttur leikskólastjóra.

Slys hafa orðið á hjólreiðamönnum á stígnum en íbúar á svæðinu sem hafa hafið söfnun undirskrifta til að mótmæla breytingum benda á að þar búi fjöldi barna sem verði óöruggari ef opnað verði fyrir umferð í gegnum botnlangann. 

mbl.is ræddi við Sigurlín Rósu og Hjálmar í dag en hann segir að tekið verði tillit til málefnalegra athugasemda og að hugsanlega verði niðurstaðan önnur en tillögur borgarinnar gera ráð fyrir.

Hér má sjá tillögur borgarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert