Lögreglan stöðvaði för bifreiðar í Vatnsendahverfi upp úr miðnætti í nótt. Mikil kannabislykt var í bifreiðinni og fundu lögreglumenn fíkniefni við leit í bifreiðinni.
Um tvö leytið stöðvaði síðan lögregla bifreið á Reykjanesbraut við Smáralind. Ökumaðurinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og fíkniefna.