Hafði enga stjórn á gjörðum sínum

Löggumyndir
Löggumyndir mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að fjölbýli í vesturbænum um ellefu leytið í gærkvöldi en þar var íbúi að kasta til húsgögnum.

Maður er býr í herbergi á efstu hæð hússins var handtekinn og vistaður í fangageymslu.  Maðurinn var í mjög annarlegu ástandi, var ekki viðræðu hæfur og hafði enga stjórn á gjörðum sínum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert