Ný gjaldskrá í bílahúsum Bílastæðasjóðs Reykjavíkur tekur gildi í dag.
Gjald fyrir skammtímastæði verður 150 krónur í stað 100 króna fyrir klukkustundina.
Breytingin gildir fyrir skammtímastæði í bílahúsunum í Kolaporti, Ráðhúsi, Traðarkoti og á Vesturgötu en ekki verða breytingar á gjaldi fyrir stæði í bílahúsum í Stjörnuporti og á Vitatorgi. Þar kostar fyrsta klukkustundin 80 krónur og hver klukkustund þar á eftir 50 krónur.