Kennarar skrifuðu undir samning

Samninganefndir FF og FS sem skrifuðu undir samninginn í morgun, …
Samninganefndir FF og FS sem skrifuðu undir samninginn í morgun, ásamt tveimur litlum aðstoðarmönnum.

Fulltrúar Kennarasambands Íslands og samninganefndar ríkisins skrifuðu undir nýjan kjarasamning í morgun vegna ríkisrekinna framhaldsskóla. Eins og kunnugt er felldu félagsmenn Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í ríkisreknum framhaldsskólum nýverið samkomulag frá 4. febrúar um nýtt vinnumat og þar með voru samningar þeirra lausir. Þetta kemur fram á vef Kennarasambands Íslands.

Könnun meðal félagsmanna leiddi hinsvegar í ljós að 76% þeirra voru fylgjandi því að gengið yrði á ný til samninga á grundvelli vinnumatsins. Í kjölfarið settust samninganefndirnar niður og byggir samningurinn sem undirritaður var í dag á hugmyndafræði þess.

Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir nýtt samkomulag í helstu atriðum líkt hinu fyrra en nú sé búið að jafna mun á milli greina, styrkja ramma utan um ráðningarhlutföll og tryggja það að sýnidæmi vinnumats gildi sem lágmarksviðmið.

Nýtt samkomulag verður sent félagsmönnum Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum síðar í dag en formleg kynning á því verður strax eftir páska. Í framhaldi verða greidd um samkomulagið atkvæði og á þeirri atkvæðagreiðslu að vera lokið eigi síðar en 15. apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert