Skúr brann við Hverfisgötu

mbl.is/Eggert

Eldur kom upp í geymsluskúr við Hverfisgötu í Reykjavík á fimmta tímanum í nótt.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins munu útigangsmenn hafa hafst þar við. Þrátt fyrir að neglt hafi verið fyrir glugga og hurð hafi einhverjir verið þar um nóttina.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Skúrinn mun að mestu hruninn eftir eldinn og slökkvistarfið.  Engan sakaði og eldsupptök eru ókunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert