Tilkynnt var um árekstur við Stekkjarbakka í Reykjavík um klukkan hálfþrjú í dag. Grunur er um að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum við aksturinn. Var hann færður í fangageymslu og verður rætt við hann þegar hann verður í ástandi til þess.
Einnig voru höfð afskipti af ökumanni bifreiðar í austurbæ Reykjavíkur skömmu fyrir hádegi í dag. Er hann grunaður um vímuefnanotkun. Maðurinn var ekki í öryggisbelti og voru skráningarnúmer tekin af bifreiðinni vegna ástands hennar. Maðurinn er einnig grunaður um brot á vopnalögum og um vörslu vímuefna.