Karlmaður féll af fjórhjóli

mbl.is

Karlmaður er alvarlega slasaður eftir að hann féll af fjórhjóli við Fróðengi í Grafarvogi um klukkan hálfníu í kvöld. Maðurinn var fluttur á slysadeild og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var send bifreið frá því á staðinn til þess að hreinsa upp eftir slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert