Segir oft glymja hæst í tómri tunnu

Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins.
Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins. mbl.is/Karl E. Pálsson

 Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda, gagnrýnir Björn Snæbjörnsson, formann Starfsgreinasambands Íslands, vegna ummæla hans á mbl.is fyrr í dag og segir að oft glymji hæst í tómri tunnu.

„Fólki er mis­boðið þetta skref HB Granda og það er ótrú­legt að fólk skuli vera að bjóða 3,5% hækk­un til launa­fólks á sama tíma og verið er að hækka stjórn­ar­laun um 33%,“ seg­ir Björn Snæ­björns­son, formaður Starfs­greina­sam­bands­ins, í viðtali við mbl.is í dag.

Kristján segir að Björn Snæbjörnsson hafi verið varaformaður stjórnar Stapa lífeyrissjóðs árið 2013.

Björn þáði 1.637 þúsund krónur í laun fyrir stjórnarsetu og setu í endurskoðunarnefnd samkvæmt ársreikningi Stapa lífeyrissjóðs 2013, segir Kristján og bætir við að Björn hafi áfram gegnt embætti varaformanns í stjórn Stapa í fyrra.

„Björn þáði laun fyrir stjórnarsetu 1.640.000,00 kr. Til viðbótar þáði hann laun fyrir setu í endurskoðunarnefnd 360.000,00 kr. samkvæmt ársreikningi Stapa lífeyrissjóðs 2014, sem hefur verið staðfestur af stjórn sjóðsins, en verður endanlega afgreiddur á ársfundi sjóðsins 29. apríl 2015, segir Kristján.

„Ég gef mér að laun fyrir endurskoðunarnefndina hafi verið þau sömu árin 2013 og 2014 eða 360.000,00, kr. segir Kristján.

Þá eru stjórnarlaun árið 2013  1.277.000,00 kr. en árið 2014  1.640.000,00 kr. eins og áður sagði. Þetta gerir hækkun um rúm 28% milli áranna 2013 og 2014, bætir Kristján við og er ósáttur við ummæli Björns varðandi hækkun stjórnarlauna HB Granda á milli ára.

„Þessi aðgerð efldi okkar fólk“

Ársreikningur Stapa fyrir árið 2013 

Ársreikningur Stapa fyrir árið 2014

Kristján Loftsson, Hvalur níundi í baksýn.
Kristján Loftsson, Hvalur níundi í baksýn. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert