Tilkynnt um eld í fjölbýlishúsi

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Tilkynning barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um klukkan hálftíu í morgun um reyk í fjölbýlishúsi við Veghús í Reykjavík. Vegna fjölda tilkynninga var sendur bæði dælubíll og körfubíll á staðinn enda um hátt hús að ræða.

Þegar á staðinn kom reyndist eldurinn minniháttar en hann hafði komið upp í rafmagni í geymsluhúsnæði. Þar höfðu raflagnir brunnið en eldurinn ekki farið víðar. Talsverður reykur varð hins vegar vegna eldsins og lagði hann um stigaganga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert